Mókollsdalur,

Gönguleiðir á Íslandi


MÓKOLLSDALUR
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Mókollsdalur inn af Þrúðardal í Kollafirði heitir eftir Mókolli landnámsmanni á Felli, sem er sagður heygður í dalnum.  Samkvæmt athugunum Olaviusar Olaviusar virtist leir úr Bleikjuholti vel til postulínsgerðar fallinn og var notaður til fatalitunar og til græðslu sára með góðum árangri fyrr á öldum.  Ekkert varð úr hugmyndum um lagningu járnbrautar úr dalnum til leirflutninga en þó nokkuð var samt flutt á hestum og úr landi snemma á 20. öldinni.

Til er saga af bónda nokkrum, sem reyndi að drýgja smjör með leirnum, þegar hann átti að greiða afgjald jarðarskika sins og olli það málaferlum.  Í dalnum hefur einnig fundizt surtarbrandur og steingerfingar plantna og skordýra.  Nú er Bleikjuholtið friðlýst.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM