|
Múli
er fornt höfuðból, löngum prestssetur og kirkjustaður í Aðaldal.
Eldra nafn bæjarins er Fellsmúli.
Prestar sóttust eftir þessu tekjuháa og þægilega
brauði. Heimajörðin
var góð, margar kirkjujarðir, hjáleigur og ítök fylgdu.
Um
aldamótin 1100 var þar Oddi Helgason (Stjörnu-Oddi), líklega einn
mesti stjörnufræðingur þess tíma í heiminum.
Hann uppgötvaði margt um gang himintuglanna og skráði
athuganir sínar. Hann hafði
samt lítil sem engin áhrif á þróun þessarar fræðigreinar vegna
þess hve fjarri hann bjó frá öðrum stjörnufræðingum og rannsóknir
hans urðu ekki kunnar fyrr en mörgum öldum síðar.
Jón
Jónsson (1855-1912), alþingismaður í mörg ár, bjó í Múla.
Sonur hans, Árni (1891-1947), var líka þingmaður og faðir Jóns
Múla og Jónasar Árnasona. Jón
Múli var kunnur fyrir rödd sína í útvarpinu um áratuga skeið, tónlist,
lagasmíði o.fl. Jónas var þingmaður og í flestu eins listfengur og Jón.
Jón lézt í apríl 2002. |