|
Núpur
við norðanverðan Dýrafjörð er fornt höfðingjasetur um aldir og
skólasetur í áratugi.
Þar sat m.a. Eggert Hannesson (1550-1583), hirðstjóri og lögmaður.
Hann var meðal valdamestu og ríkustu manna landsins þar til
hann fluttist alfarinn til Hamborgar.
Gissur Þorláksson, bróðursonur Gissurar Einarssonar biskups
í Skálholti bjó að Núpi í lok 16. aldar.
Hann kvæntist Ragnheiði Pálsdóttur (Staðarshóls-Páll) en fórst
ungur í snjóflóði á Hrafnseyrarheiði.
Þáverandi prestur að Holti, Sveinn Símonarson, færði
ekkjunni þessi válegu tíðindi.
Hún er sögð hafa spurt hann, hvort hann gæti ekki reynt að
gleðja sig á einhvern hátt, og prestur bað hennar.
Hún tók því vel og sonur þeirra Brynjólfur varð biskup í
Skálholti.
Jón Gissurarson (Þorlákssonar) lærði gullsmíði í Hamborg
og settist síðan að á Núpi.
Hann var mikill grúskari og skildi eftir sig mikið af sögubókum,
sem hann skrifaði upp.
Núpur
er kirkjustaður frá fornu fari.
Þar var stofnaður skóli fyrir unglinga í janúar 1907 að
frumkvæði séra Sigtryggs Guðlaugssonar og tuttugu árum síðar var
honum breytt í héraðsskóla samkvæmt nýsettum lögum.
Þessi skóli var starfræktur til ársins 1992.
Meðal margs, sem presturinn tók sér fyrir hendur var gerð garðsins
Skrúðs, þar sem minnismerki um hann og konu hans stendur.
Skólabyggingin er notuð sem hótel á sumrin. |