|
Ólafsdalur
í Dalasýslu er u.þ.b. 5 km langur suður úr innanverðum Gilsfirði.
Þar er samnefndur bær, þar sem Torfi Bjarnason (1838-1915)
stofnaði fyrsta búnaðarskóla landsins af eigin rammleik.
Þessi skóli starfaði á árunum 1880-1907, þegar hið
opinbera tók við búnaðarfræðslunni.
Torfi
var mesti landbúnaðarfrömuður sins tíma og lagði mikið til betri
vinnubragða og tækniframfara.
Hann smíðaði og flutti til landsins skozka ljái, sem voru
kenndir við hann og nefndir Torfaljáir.
Hann rak tóvinnslu og mikið var smíðað af jarðvinnsluverkfærum
í Ólafsdal.
Torfa og Guðlaugu Zakaríasdóttur, konu hans, var reistur
minnisvarði í Ólafsdal árið 1955.
Nú er bærinn í eyði en er skólasel Menntaskólans við Sund
í Reykjavík.
Ólafsdalsá
rennur í sunnanverðan Gilsfjörð.og er fremur
stutt og vatnslítil með upptökin í hálendinu. |