|
Vegna
jarðfræðilegrar samsetningar Íslands er uppsprettuvatn og þar með
drykkjarvatn mjög kalksnautt. Þess
vegna er ástæða til að nýta ölkelduvatn, einkum kalkríkt, og koma
því á markað, sem neyzluvatni í hentugum umbúðum.
Í þessum tilgangi ber sérstaklega að nefna:
Ölkeldu við Bjarnarfosskot í Staðarsveit með 255,0 mg Ca²+
pr. kg,
Ölkeldu
við Ölkeldu í Staðarsveit með 220,0 mg Ca²+ pr. kg,
Ölkeldu
við Glaumbæ í Staðarsveit með 686,0 mg Ca²+ pr. kg.
Vatni
úr þessum ölkeldum er unnt að umbreyta í bragðgóðan drykk með
íblöndun kolsýru. Sama
gildir um aðrar ölkeldur, svo sem við:
Lýsuhól í Staðarsveit með 30,5 og 47,7 mg Ca²+ pr. kg,
Stórahver
með 35,7 mg Ca²+ pr. kg,
Ósakot
í Staðarsveit með 20,2 mg Ca²+ pr. kg.
Af
samgönguástæðum kemur nýting ölkeldunnar við Stórahver norður
af Torfajökli ekki til greina. Hentugast er ölkelduvatn með litlu járninnihaldi,
þar sem það umbreytist lítið með tímanum og hefur því betra
geymsluþol. Slíkar ölkeldur
eru við
Vallnahnúk undir Svartbaksfelli á Snæfellsnesi með 0,33 mg Fe²+
pr. kg og Glaumbæ
í Staðarsveit með 0,61 mg Fe²+ pr. kg.
Vatn
ölkeldunnar við Ölkeldu, sem inniheldur 2,0 mg Fe²+ pr. kg, liggur
á mörkunum, sem þýðir, að járnútfellinga megi vænta við kolsýrublöndun.
Úr vatni ölkeldunnar við Bjarnarfosskot, sem inniheldur 5,5 mg
Fe²+ prk kg, þyrfti aftur á móti að fjarlægja leyst járn fyrir áfyllingu
og dreifingu.
Allt ölkelduvatn, sem rannsakað var, innihélt lítið af klóríðjónum,
sem þýðir, að þar er snautt af matarsalti.
Það kemur sérstaklega fram í bragði þess sem neyzluvatns.
Flestar ölkeldur er unnt að nota sem heilsulindir.
Kransæðasjúklingar geta hagnýtt sér kalkríkt ölkelduvatn,
sem í sumum tilfellum getur bjargað lífi þeirra.
Einnig er slíkt ölkelduvatn heilsulind fyrir nýrnasjúklinga
vegna þvagörvandi eiginleika þess.
Bíkarbónatinnihald ölkelduvatns verkar vel á sykursjúka, þar
sem langvarandi neyzla vatns, sem inniheldur kalsíum- eða natríumbíkarbónat,
skapar minni insúlínþörf. Í
þessu sambandi ber sérstaklega að nefna ölkeldur við
Bjarnarfosskot, Lýsuhól, Ölkeldu, Vallnahnúk og Glaumbæ. Í heitu, kolsýruríku vatni ölkeldna eru jafnframt fólgnir möguleikar
til lækninga ýmissa hjartasjúkdóma, en við slíka meðferð verður
sjúklingurinn að vera undir ströngu eftirliti læknis. Í þessu
skyni kæmu sérstaklega til greina ölkeldurnar við Glaumbæ og Lýsuhól.
Þó þyrfti að framkvæma nánari koldíoxíðákvarðanir (CO²)
á þessum stöðum. |