|
Önundarfjörður liggur milli Dýrafjarðar og
Súgandafjarðar. Hann er um 20 km langur og 6 km breiður í mynni en
mjókkar mjög, er innar dregur. Há fjöll eru til beggja handa, flest
600-700 m há með mörgum hvössum brúnum og hyrnum. Yzt eru Sauðanes
að norðan og Barði að Sunnan. Hann er sæbrattur mjög og klettar
frá efstu brún og í sjó niður.
Undirlendi talsvert er fyrir
fjarðarbotninum og víða ganga smádalir, sumir byggðir, inn á milli
fjallanna við fjörðinn. Þeir eru flestir vel grónir.
Önundarfjörð nam Önundur Víkingsson . hann var einn hinna
ættstærstu landnámsmanna, því að hann var launsonur Haralds
konungs hárfagra. Þórður, bróðir hans, nam land í Dýrafirði og
bjó í Alviðru. Stundum hafa mikil og váleg slys orðið á
Önundarfirði, eitt hið mesta árið 1812, þegar sjö skip þaðan
týndust í einum og sama róðri. Fórust með þeim um 50 manns og
urðu eftir það mannfall 16 ekkjur í sveitinni.
Svo undarlega hafði
brugðið við, að bæði vikurnar næstu á undan og eftir var algert
aflaleysi í firðinum en daginn, sem skipin fórust hlóðu allir á
skammri stundu. Þeir fórust, sem ekki köstuðu fiskinum fyrir borð.
Í Önundarfirði eru fjórir bæir með sama nafni, heita Kirkjuból,
og mun slíkt einsdæmi í nokkurri einstakri byggð á landinu.
Yzta
byggð við vestanverðan fjörðinn er Ingjaldssandur og er sandurinn
í Mýrahreppi með norðurströnd Dýrafjarðar. Annars var öll byggð
við Önundarfjörð eitt sveitarfélag, Mosvallahreppur, fram til 1925,
þegar kauptúnið á Flateyri varð sérstakur Hreppur og nær hann inn
að Breiðadalsá. |