|
Orkuveita Reykjavíkur varð til við samruna
Hitaveitunnar og Rafmagnsveitunnar og hóf starfsemi hinn 1. janúar 1999.
Vatnsveitan sameinaðist Orkuveitunni um áramótin 2000, þannig að
útkoman varð stærsta veitufyrirtæki landsins.
Nánari upplýsingar um starfsemi og sögu þessara þriggja
burðarstólpa Orkuveitunnar er að finna hér að neðan.
Orkuveitan er
eign Reykjavíkurborgar og borgarráð er framkvæmdastjórn fyrirtækisins og
forstjórinn starfar í umboði hennar.
Dreifisvæði raforku nær yfir höfuðborgrina, Kópavog,
Garðabæ, Seltjarnarnes og Mosfellsbæ.
Dreifikerfi hitaveitu nær yfir höfuðborgina, Kópavog og Garðabæ en
Mosfellsbær kaupir heitt vatn í heildsölu.
Dreifikerfi kalds neyzluvatns nær yfir höfuðborgina og Kópavogur,
en Seltjarnarnes og Mosfellsbær kaupa í heildsölu. |