|
Orrustuhóll
er óbrynnishólmi, sem stendur upp úr Skaftáreldahrauni austast á Síðu
við Þverá, rétt sunnan þjóðvegarins.
Munnmæli herma, að Hámundur halti hafi hefnt þar föður
sins, Hróars Tungugoða.
Þjóðsaga
segir frá tveimur ölduðum bændum af Síðu, sem hittust aldrei án
þess að skattyrðast.
Þeir dóu með skömmu millibili og voru báðir grafnir uppi á
hólnum.
Þeir, sem framhjá fóru,
þóttust heyra þá við sama heygarðshornið í hólnum.
Núna liggur þjóðleiðin alllangt norðan
hólsins, þannig að ganga verður spölkorn yfir úfið
Brunahraunið til að komast að honum. |