|
Yzti
hluti þessarar snarbröttu hlíðar milli Hnífsdals og Bolungarvíkur
er kallaður Óshyrna og neðan hennar eru Óshólar, sem eru vitastæði.
Sagt er, að stór klettur í hlíðinni austanverðri sé Þuríður
sundafyllir, landnámskona, sem varð þar að steini.
Neðan dalskoranna Kálfadals og Seljadals var útræði fyrrum.
Vegur var lagður um Óshlíð 1950 og þótti stórvirki.
Síðan hafa verið byggðir vegskálar og reistar netgirðingar,
þar sem mest hætta er á hruni en samt líður varla ár án einhverra
óhappa.
Þarna
var fyrrum gönguleið, sem var ekki síður hættuleg fólki vegna
hruns og snjóflóða.
Við Sporhamar og Hald varð göngufólkið að handstyrkja sig
áfram.
Steinkrossinn við veginn er hjá Haldi og á honum stendur:
„Góður Guð verndi vegfarendur”.
Ósvör
er endurbyggð verbúð í Óshólum, sem er til sýnis gestum og
gangandi gegn gjaldi. |