|
Óspakseyri er landnám
Þorbjarnar bitru við Bitrufjörð.
Nafnið er frá Óspaki, sem bjó þar á söguöld.
Þar hefur staðið kirkja frá katólskri tíð og núverandi
kirkja var reist árið 1939. Höfnin
er löggilt en engin hús tengd henni.
Ungmennafélag Bitrunga reisti þar samkomuhús 1927 og þingstaður
hreppsins var þar lengi. Landið
er vel fallið til sauðfjárbúskapar og reki, æðarvarp og silungsveiði
talin til hlunninda. Fyrri hluta 20. aldar var þar verzlun af og til fram að
stofnun Kaupfélags Bitrufjarðar 1942 og sláturhúss þess.
Metúsalem Jóhannsson
keypti Óspakseyri 1912 af Marínó Hafstein, sýslumanni, sem bjó þar
frá aldamótunum 1900. Fram
að því höfðu aðeins verið afgreiddar þar pantaðar vörur á
vegum Dalafélagsins. Sigurgeir
Ásgeirsson keypti og rak verzlunina til 1936.
Kaupfélag Hrútfirðinga byggði lítið verzlunarhús á
Eyrinni 1929 og hóf rekstur. Það
tók við rekstri Sigurgeirs, þegar hann hætti.
Þá kom fram vilji til stofnunar eigin kaupfélags, sem varð að
veruleika 1942. Þar er nú
minnsta kaupfélaga landsins, sem er oftast opið einu sinni í viku.
Eyrin
varð til við framhlaup úr Eyrarfjalli og árið 1943 hljóp fram stór
skriða rétt fyrir jólin og tók hlöðu og fjárhús án fjárskaða,
því að smalinn var ekki kominn lengra með féð en heim á hlað, þegar
ósköpin dundu yfir. Upptök
skriðunnar voru úr miðju hlíðum og hún var 150-200 m breið.
Eitt húsanna, sem sópaðist brott, var notað til gærusöltunar
og birgðirnar þar bárust út ár fjörð og flutu burt. Hey skemmdist, uppskipunarbátur brotnaði og ýmsar vörur
glötuðust, þannig að tjón kaupfélagsins og bóndans var talsvert.
Bitrufjörður gengur vestur úr Húnaflóa, rétt
norðan mynnis Hrútafjarðar. Hann er u.þ.b. 10 km
langur og djúpur. Undirlendið er aðallega við botn
hans. Bæði fjörðurinn og byggðin við hann eru oftast
nefnd Bitra. Nafngjafinn var Þorbjörn bitra, sem nam
þarna land. Landnáma segir hann hafa verið „víking og
illmenni.” Yzta nestáin við sunnanverðan fjörðinn er
Guðlaugshöfði. Þar braut Guðlaugur nokkur skip sitt.
Hann komst í land með konu og dóttur, en aðrir fórust.
Þorbjörn bitra kom þar að og drap foreldrana og tók
dótturina í fóstur. |