|
Öxarfjörður eða Axarfjörður er á milli
Tjörness og Melrakkasléttu. Flóinn er u.þ.b. 30 km breiður milli
Knarrarbrekkutanga og Kópaskers en nær stutt inn í landið. Vestantil
eru sæbrattar og þverhníptar hlíðar Tjörnessins og milli þess og
Öxarfjarðarhrepps eru miklir og flatir sandar
Kelduhverfis, framburður Jökulsár á Fjöllum. Þegar
framburðurinn er mestur sjást glögg litaskipti í
sjónum, langt út á flóann.
Hvítabirnir voru tíðir gestir með hafsísnum, sem fyllti
stundum flóann og fara ýmsar sögur af
viðureignum við þá. Hafísinn rak líka hvali með sér á land
auk trjáviðar. Rekaviðurinn á norðanverðu landinu er kominn
alla leið frá ströndum Síberíu, þar sem hann berst niður
árnar og bolir, sem sökkva ekki festast í ísnum. Ísinn berst
síðan umhverfis Norðurpólinn og flekar losna frá meginísnum norðan landsins og berast með
Austur-Grænlandsstraumnum að ströndum Íslands.
Ferjubakki er bær við Jökulsá á Fjöllum í
Öxarfirði. Þar var lögferjustaður þar til brú var
byggð 1905. Á sama stað var byggð hengibrú á árunum
1956-57. Fornbréf frá 1402 segir, að íbúar
nærliggjandi sveita skuli greiða 5 pund smjörs þriðja hvert
ár til ferjubónda sem ómakslaun og viðhalds ferjunnar.
Þessir sveitamenn fengu frían flutning með ferjunni, en
aðrir urðu að greiða farið. Síðar var þessi háttur
lagður af, fastir ferjutollar teknir upp og sýslan annaðist
ferjuna.
Bæklingar og kort um göngu- og ferðaleiðir í Kelduhverfi,
þjóðgarðinum og á Melrakkasléttu fást í aðalmiðstöð
þjóðgarðsins í Ásbyrgi.
Lundur er grunnskóli milli Skinnastaðar og Ærlækjar.
Barnaskóli með heimavist var reistur 1928 og héraðsskóli
Norður-Þingeyinga var rekinn þar á árunum 1965-72.
Núpasveit nær frá Öxarnúpi að Snartarstaðanúpi og
byggðin er aðeins með ströndinni. Bak við hana eru lág
fjöll og hraunum þakin heiðarlönd. Talsvert var róið
til fiskjar, m.a. frá Buðlungahöfn norðan Brunnáróss.
Þar var líka löggilt höfn og enn þá sjást merki um vöruhús
kaupmannsins á Húsavík. Brunná hefur smám saman borið
í hana sand. Sveitin er ekki þéttbýl, en þar eru engu
að síður mörg myndarbýli. Kópasker er í Núpasveit.
Núpur er vestan Öxarnúps. Á 19. öld flúði
heimafólk bæinn vegna magnaðs draugagangs. Ástæða hans
var sögð vera álagatjörn norðan núpsins. Sagt var, að
friðhelgi hennar hefði verið rofin og því varð allt
vitlaust. Hús léku á reiðiskjálfi og munir þeyttust um
þveran og endilangan bæinn. Allt var brotið og
bramlað, jafnvel niðri í læstum hirzlum.
Skógar eru stórbýli í Austur-Sandi í Öxarfirði og
talið fyrsti bærinn, sem var byggður í óshólum Jökulsár á
Fjöllum. Jörðin er stór, engjar grösugar og reki
góður. Sagan segir, að bóndinn á bænum hafi fengið
hugboð um yfirvofandi náttúruhamfarir vorið árið 1717, þegar
Jökla þornaði upp. Hann létt flytja öll verðmæti upp á
loft og bát að bæjardyrum og binda hann þar.
Heimilisfólkið mátti ekki ganga til hvílu, því bóndi bjóst
við hinu versta. Um bjarta nóttina sá fólkið
vatnsvegginn koma æðandi úr suðri, en bærinn slapp.
Ísjakar bárust upp á hlaðvarpann, en ekki þurfti að grípa
til bátsins.
Árin 1975-76 hækkaði vatn svo mikið í Skógakíl, sem fellur
fram hjá bænum, að flytja þurfti burt hey og fé.
Járskjálftarnir ollu þessum breytingum. |