|
Fyrsti
verzlunarstaður Austur-Skaftafellssýslu var á Papósi við
Papafjörð.
Þar var verzlað á árunum 1861-97 þangað til verzlun hófst
á Höfn.
Næstu tvö árin var rekinn unglingaskóli með heimavist á staðnum.
Þessi gamli verzlunarstaður stendur við Papafjörð, sem
gengur inn úr Lónsvík.
Ósinn var fær litlum skipum og skjólgóð lega, þegar inn
fyrir var komið.
Rústir húsanna á staðnum eru áberandi enn þá og eitt húsanna,
sem eftir stóð, var flutt til Hafnar, þar sem það hýsir byggðasafnið.
Sunnan
gamla verzlunarstaðarins eru svokallaðar Papatættur, sem sagðar eru
vera frá tíma írsku einsetumannanna, sem bjuggu á landinu fram yfir
upphaf landnáms norrænna manna. |