|
Parthús voru í landi Arnheiðarstaða í
Fljótsdal.
Þar voru beitarhús alllangt frá bæjarhúsunum, þar sem illskeyttur
draugur hafðist við.
Parthúsa-Jón flúði ásamt félaga sínum inn í húsin undan
ofsaveðri.
Þar lögðust þeir á garðann og Jón sagði félaga sínum að hreyfa
sig ekki, þótt hann heyrði eitthvað undarlegt.
Brátt hófust mikil ólæti, sem félaginn þóttist ekki heyra og lá
sem fastest, en þótti í óefni komið fyrir Jóni.
Hann var lamaður af ótta og hreyfði hvorki legg né lið fyrr en
lætin voru yfirgengin.
Þá skundaði hann til næsta bæjar.
Daginn eftir blöstu líkamshlutar Jóns við vítt og breitt um
fjárhúsin.
Part hús eru neðan þjóðvegar á Arnheiðarstaðaparti, sem var
fyrrum kirkjuhluti Valþjófsstaðar í jörðinni. |