|
Pétursey er stakt móbergsfjall (275m) austan Sólheimasands í Mýrdal. Fjallið hét
áður Eyjan há. Það er mjög gróið og merki sjást um hærri sjávarstöðu fyrrum.
Á sturlungaöld bjuggust 200 manns til varnar uppi á fjallinu.
Eyjarhóll er
strýtumyndaður hóll sunnan fjallsins. Hann er gígtappi úr blágrýti og við hann og
fjallið eru fjöldamargar sagnir um huldufólk tengdar. Grónar hlíðarnar eru
smástöllóttar. Þessir stallar myndast við hægt sig jarðvegs. |