|
Fornmannakumlanna, 2½ km
austan Keldna á Rangárvöllum, var fyrst getið í upphafi 19. aldar. Þau
eru báðum megin núverandi leiðar um Miðveg. Margir menn voru greinilega
grafnir á öðrum staðnum, þar sem fundust m.a. bronskringla, hringamél,
hóffjöður, skeifa og þrjú spjót. Í hinu kumlinu, sem er í Árholtsbrún,
fundust engin verðmæti önnur en útskorinn beinhólkur með myndum af
tveimur hjartardýrum að bíta trjálauf.
Kristján Eldjárn gerði því skóna
í bókinni „Gengið á reka”, að þarna væri e.t.v. kominn sönnun fyrir
bardaganum við Knafahóla, sem Gunnar og Kolskeggur lentu í samkvæmt
Njálssögu. Síðar dró Kristján í land með þessa kenningu í
doktorsritgerð sinni.
Knafahólar eru
u.þ.b. 4 km norðan Keldna. Samkvæmt Njálssögu sátu þar 30 menn
fyrir bræðrunum Gunnari, Kolskeggi og Hirti. Þeir hopuðu niður að
Rangá undan árásarmönnunum og þar sló í bardaga. Þar féll Hjörtur
og 14 andstæðinganna áður en flótti brast í lið þeirra.
Fyrrum var
byggð í kringum Knafahóla, þar sem nú er einungis sandorpið landslag. |