|
Hlutverk
RARIK er að afla, flytja, dreifa og selja orku, og stuðla þannig að
aukinni verðmætasköpun og farsæld í landinu. Rafmagnsveitur ríkisins,
RARIK, tóku til starfa 1. janúar 1947. RARIK er í eigu ríkisins, en er
rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. Yfirstjórn er í höndum þess ráðherra sem
fer með orkumál hverju sinni. Rarik aflar orku með eigin framleiðslu og
innkaupum og flytur hana um flutningskerfi til rekstrarsvæða sinna.
Fyrirtækið selur raforku í heildsölu til rafveitna, dreifir raforku og
varmaorku um eigin orkuveitusvæði og selur þar viðskiptavinum orkuna í
smásölu. |