|
Bæjarhúsin
kúra undir hárri hraunbrún þar sem þjóðvegurinn sveigir frá suðri
til vesturs út á Snæfellsnes. Sel-Þórir
landnámsmaður byggði sér bæ þar eins og marbendillinn, sem Grímur
faðir hans dró, spáði. Á
síðari hluta 20. aldar fundust fjórir, u.þ.b. 300 ára eirkatlar í
hraungjótu við túnfótinn. Árið 1570 var endurreist fornt kirkjusetur á Rauðamel og
hin forna Haffjarðareyjarsókn lögð til hennar.
Nú stendur falleg, lítil timburkirkja á staðnum.
Stærsta
og þekktasta ölkelda landsins er í nágrenni bæjarins og er kennd við
hann. Frá þjóðvegi er aðeins
stundarfjórðungs gangur að henni.
Gjallgígarnir ofan og austan bæjar eru bæði áberandi og
formfagrir. Hinn vestari,
Ytri-Rauðamelskúla, teygist u.þ.b. 222 m yfir sjó
en 100 m yfir umhverfið. Í toppi hennar
er grunn gígskál. Hraunið
umhverfis nær yfir u.þ.b. 2,7 km²,
Hinn gígurinn, austan Haffjarðarár, er líka reglulega lagaður
og myndaði 2,5 km², úfið apalhraun.
Bæði hraunin eru u.þ.b. 2600 ára. |