|
Rauðhólar eru leifar gervigígaþyrpingar (u.þ.b.
4600 ára) í Elliðaárhrauni norðaustan Elliðavatns. Þeir eru í löndum Hólms og Elliðavatns. Þeir voru rúmlega 80
áður en farið var að spilla þeim með efnistöku undanfarna
áratugi. Mest var ásóknin í þá á seinni stríðsárunum, þegar
mikið var byggt, s.s. Reykjavíkurflugvöllur, en þar mun að finna
mestan hluta þess efnis, sem tekið var í Rauðhólum.
Næstu ár og
áratugi var efni úr hólunum notað í ofaníburð í götur í
borginni og húsgrunna. Rauðhólar voru friðlýstir sem
náttúruvætti árið 1961 og árið 1974 var Rauðhólasvæðið gert
að fólkvangi. Árið 1933 var spilda í vesturhluta hólanna leigð
fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík til
útisamkomuhalds. Síðar var spildan ásamt skála, sem hafði verið
reistur þar afhentur borginni á ný.
Sjá:
Leitahraun
Þar var rekið um tíma
barnaheimilið Vorboðinn sem sumardvalarheimili fyrir börn. Sumarið
1986 var starfrækt útileikhús í Rauðhólum, þar sem brot úr
Njálssögu voru sett á svið.
|