|
Raufarhólshellir er rétt fyrir ofan efsta hjallann á Þrengslavegi,
áður en
farið er niður í
áttina til Þorlákshafnar. Hann er ekki vel
sýnilegur frá veginum, þótt hann sé aðeins steinsnar frá honum
austanverðum. Hellirinn er u.þ.b. 1360 m langur
og liggur að hluta undir Þrengslaveginum. Hellirinn er
10-30 m breiður og upp undir 10 m hár. Þakið
er víðast u.þ.b. 12 m þykkt nema undir veginum, þar sem það þynnist stöðugt við hrun.
Víða hefur
hrunið úr þaki hellisins og talsvert er um ísingu, þannig að það
er allerfitt að ganga hann á enda. Reikna má með 3-4 klst. í slíka ferð fram og til baka.
Hellirinn hefur goldið fyrir að hafa fundizt
snemma, því að ekkert er eftir af dropasteinum
eða hraunreipum.
Um tíma, skömmu eftir 1990, var duftker með ösku indíána frá
Eldlandi og plagg með minningu um hann í hellinum. Sagt var,
að þýzkur vinur hans hafi lofað að koma jarðneskum leifum
hans fyrir á viðeigandi stað. Hvort tveggja var fjarlægt.
Raufarhólshellir er talinn hafa myndazt í sprungugosi, sem skildi
eftir 11 km langa gígaröð. |