|
Rekavík bak höfn er aðeins lítil skál milli
Hælavíkurbjargs og Hafnarfjalls í Hornvík. Þar stóð fyrrum einn
bær samnefndur víkinni. Örðugt var til búskapar og helzt til að
drýgja björgina var eggja og fuglatekja í Hraundalabjargi og
fiskimið skammt undan landi. Klettar í sjó fram milli Rekavíkur og
Hafnar nefnast Tröllakambur.
Hinn 2. maí 2011, kl. 09:00 tilkynnti skipstjóri hrognkelsabáts um ísbjörn, sem hvarf í þoku uppi
í hlíðum Hælavíkur. Ekki var vitað um ferðamenn á
svæðinu, en komið var í veg fyrir fyrirhugaða ferð þennan daginn.
Viðbragðsáætlun var strax virkjuð og dýrið, sem hafði
skokkað alla leið til Rekavíkur, var skotið
samdægurs úr þyrlu landhelgisgæzlunnar. Þetta var
líklega fjögurra ára birna, sem vóg um 150 kíló.
FLJÓTAVÍK
Fljótavík
er breið vík milli Hvestu og Kögurs á Hornströndum. Byggðin hét Fljót
og voru þar þrír bæir. Þar eru Atlastaðir.
Geirmundur heljarskinn
Hjörsson hafði þar bú og varðveitti það Atli, þræll hans, að sögn
Landnámu. Atli tók heila skipshöfn til vetursetu til að sýna, hversu
mikill höfðingi húsbóndi hans hlyti að vera, þegar þræll hans þyrði að
gera slíkt. Þótti Geirmundi lofið gott og gaf Atla frelsi og bú að
launum. Allbúsældarlegt er í Fljótavík eins og víðar á Hornströndum.
Þar er skipbrotsmannaskýli. |