|
Reykholt í Reykholtsdal er einhver
merkasti sögustaður landsins,
ekki sízt
vegna búsetu Snorra Sturlusonar. Margir telja
han merkasta skáld, rithöfund og
fræðimann, sem Ísland hefur alið, en Snorri
bjó í Reykholti á árunum 1206-1241. Reykholt
hefur verið skólasetur áratugum saman, en einungis
hótel síðan 1998, og þykir merkur kirkjustaður.
Náttúrufegurð er þar mikil og jarðhiti þar
eins og víðar í Reykholtsdal, sem er stærsta
lághitasvæði landsins..
Margt er að skoða í
Reykholti, þ.á.m. hina fornu Snorralaug, en frá
henni liggja jarðgöng til bæjar, og Snorrastofa,
sem ætlað er að kynna verk Snorra Sturlusonar. Fornleifarannsóknir
hafa verið stundaðar á staðnum, síðast 1998
og 1999 (þar áður 1986 og 1987) og margt merkilegt komið
í ljós.
Í nágrenni Reykholts er
Deildartunguhver, sem talinn er vatnsmesti hver í heimi. Tiltölulega
stutt er að aka frá Reykholti til Húsafells og
í Húsafellsskóg. Á þeirri leið eru
Hraunfossar
/ Barnafoss, sem þykja einstök
náttúrsmíð. Vegalengdin frá Reykjavík er 84
km.
Í Reykholti er þjónusta og
upplýsingar um sögu staðarins
. |