|
Reykjarfjörður
á milli Geirólfsgnúps og Þaralátursness er breiður og stuttur.
Hann fór endanlega í eyði 1959 en húsunum, sem standa í
tveimur þyrpingum við fjörðinn norðvestanverðan, hefur verið
haldið við.
Bæjarhúsin eru á hæð við sjóinn og sumarbústaðir nokkru
innar.
Eyðibýlið Sæból er við sunnanverðan fjörðinn við rætur
Sigluvíkurgnúps.
Kirkjuból stóð hjá heitri laug undir Miðmundahorni.
Jarðhiti er talsverður í Reykjarfirði og á hverasvæðinu
hefur mælzt allt að 64°C hiti.
Neðsta laugin er nýtt fyrir Hestavallalaug, sem var byggð
1938. Rekaviður
taldist til mikilla hlunninda.
Klettaborgirnar á gróðursælu sléttlendinu eru góður útsýnisstaður
og eru gott sýnishorn af jökulnúnu landslagi.
Landnáma
getur þess, að Geirólfur landnámsmaður hafi brotið skip sitt undir
Geirólfsgnúpi austan Reykjarfjarðar og setzt þar að.
Drangurinn Biskup er yzt á nesoddanum og neðan hans sker, sem
er líkt atgeir í laginu og kallast Geirhólmi.
Sigluvík er milli núpsins og Sigluvíkurnúps.
Þar inn af tekur við gróið láglendi, sem var var fyrrum
hluti af Reykjafjarðarsandi.
Þar er keðjufesting í klöpp, sem var fyrrum notuð fyrir báta.
Lengsti skriðjökull norðanverðs Drangajökuls gengur niður
í Reykjarfjarðardalinn og undan honum fellur Reykjarfjarðarós.
Þarna eru þrjár áberandi jökulöldur, hin yngsta frá
1914-20.
Reykfirðingar eiga sögunarhús fyrir rekaviðinn við klett út
frá láglendinu.
Þaðan er stutt í Skipakletta, gamla lendingu.
Á skerjunum fyrir utan er oftast mikið um sel.
Á sumrin er rekin ferðaþjónusta í Reykjarfirði og þar býðst
göngufólki að halla sér í svefnpokunum sínum í sumarhúsum.
Þar er líka hægt að tjalda og njóta Hestavallalaugarinnar.
Flugvöllur er í Reykjarfirði.
Gönguleiðir
eru m.a. á Geirólfsgnúp, þar sem útsýni er vítt. Leiðin
þangað upp liggur um vað á Reykjarfjarðarósi og fjárgötur í
Sigluvík.
Þaðan liggur leiðin í átt að Skjaldarbjarnarvík og farið
út af henni þar sem vænlegast er að halda á brattann.
Margir göngumenn leggja leið sína frá Reykjarfirði suður í
Ófeigsfjörð á Ströndum.
Þá er líka vinsælt að ganga um Reykjarfjarðarháls í Þaralátursfjörð
og áfram í Furufjörð, sem er hliðið að hinum eiginlegum
Hornströndum.
 |
 |
|