|
Sælingsdalstunga
er bær í Sælingsdal í Dalasýslu við rætur Tungumúla. Þar stóð kirkja fram til 1853 og katólskar kirkjur staðarins
voru helgaðar Maríu mey og Jóhannesi skírara.
Laxdæla segir okkur frá búsetu Guðrúnar Ósvífursdóttur og
Bolla Þorleikssonar eftir víg Kjartans Ólafssonar.
Þegar Bolli hafði verið veginn í hefndarskyni, hafði Guðrún
bústaðaskipti við Snorra goða á Helgafelli og bjó þar til dauðadags.
Faðir Guðrúnar bjó á Laugum í Sælingsdal, eða Sælingsdalslaug
eins og bærinn var kallaður á söguöld.
Þegar
Snorri goði hafði tekið við búsforráðum, byggði hann kirkju í
Tungu og sagt er, að enn þá sjáist fyrir tóttum hennar.
Afkomendur Sturlu lögmanns
Þórðarsonar bjuggu lengi í Tungu síðar.
Niðri
við Sælingsdalsá er Tungustapi, sem kunnastur er fyrir áhrifamikla
álfasögu, en menn trúðu, að stapinn væri dómkirkja álfanna. |