|
Allt fram
til ársins 1947, þegar Jökulsá á Fjöllum var brúuð á Mývatnsöræfum, var
lögferja frá Grímsstöðum aðeins norðar en brúin var reist. Þar var
hlaðið sæluhús úr steinlímdu grjóti árið 1881. Í kjallaranum var
hesthús og svefnloft fyrir ofan, þar sem var einnig eldstæði. Óhætt er
að fullyrða, að fæst sæluhúsa á landinu á þessum tíma hafi verið eins
vel búin.
Í vörslu Þjóðminjasafns Íslands
frá 1988. Sigurbjörn Sigurðsson
steinsmiður frá Hólum í Laxárdal.
Hvað, sem
því líður, varð ekki öllum svefnsamt þar. Húsið varð alræmt vegna
draugagangs. Gestir þess heyrðu högg og hávaða, þeim fannst þreifað á
sér og hundar létu illa. Stundum virtist einhver vera rífa þakið af
húsinu. Þeir, sem vissu lengra en nef þeirra náði, þóttust kenna
ógulega ófreskju. Einn þeirra, Jóhannes Jónsson (Drauma-Jói), lýsti
henni sem kafloðnum og ægilegum veturgömlum kálfi. Þetta hús
stendur enn þá og bíður eftir gestum! |