|
Stóra- og
Litla-Sandvík eða Sandvíkur eru sunnan Hafnabergs á Reykjanesi. Þar er
vinsæll áningarstaður ferðafólks á leið um utanvert Reykjanes.
Sumarið 2005 var Sandvík vettvangur töku kvikmyndarinnar „Flags of our
fathers", sem Clint Eastwood kostaði. Næstum þriðjungur
myndarinnar var tekinn þar á rúmum mánuði. Clint og lið hans fór
úr landi 8. september og strax var tekið til við lagfæringar á
landslaginu. Kvikmyndin fjallar um innrás Bandaríkjamanna á Iwo
Jimo í síðari heimsstyrjöldinni. Hún var mjög mannskæð og
mikilvæg vegna aðstöðu flugvallarins, sem kom Bandaríkjamönnum í
fluggrennd við Japan. |