|
Seley
er klettaeyja, sem liggur u.þ.b. 4,6 km utan mynnis Reyðarfjarðar.
Hún er lág (21m) og þakin gróðri.
Norðan og sunnan hennar eru nokkur sker.
Eyjan var í eigu Hólma og æðarvarp var þar mikið.
Enginn hefur búið að staðaldri í Seley en þar voru fyrrum
verbúðir sjómanna, sem stunduðu aðallega hákarla-, lúðu- og skötuveiðar.
Eins
og víða annar staðar í verum fyrri tíma voru þar aflraunasteinar,
sem sjómenn reyndu afl sitt á í landlegum.
Þeir voru kallaðir Hrúturinn, Ærin og Lambið
Ásmundur Helgason gerði þessu tímabili góð skil í bókinni
„Á sjó og landi”.
Í Tyrkjaráninu 1627 komust 13 Reyðfirðingar
undan
sjóræningjunum með því að fela sig í Seley
segja munnmæli. |