|
Seljalandsfoss er u.þ.b. 60 m
hár og tiltölulega auðvelt er að ganga allan hringinn í kringum
hann, þótt oftast sé sleipt að fara á bak við hann.
Hinn 15. janúar
1967 mældist dagsúrkoman 101 millimetrar í Skógum. Þá urðu miklir
vatnavextir í ám og Seljalandsfoss ófríkkaði talsvert, þegar
skarð kom í fossbrúnina.
Norðan Seljalandsfoss er eyðibýlið Hamragarðar.
Síðasti bóndinn þar, Erlendur Guðjónsson (1890-1969) gaf Skógrækt
Rangæinga jörðina árið 1962 og þar hófust framkvæmdir tveimur árum
síðar. Það og Rangæingafélagið í Reykjavík keyptu bæjarhúsin og
reka þar sumardvalarstað. Norðan bæjar er einhver fallegasti
foss landsins, Gljúfurárfoss, í Gljúfurá (Norðurá). Sumir nefna
þennan foss Gljúfrabúa, sem er rangnefni. |