|
Seyðisfjörður gengur
suður úr Djúpinu milli Hestfjarðar og Álftafjarðar.
Hlíðar í Seyðisfirði eru brattar og gróðurlitlar.
Nokkuð gróðurlendi er innst í firðinum og væri þar gott
til ræktunar, ef nokkrum kæmi að nytjum.
Nú
er öll byggð við fjörðinn eydd.
Hinn svonefndi Djúpvegur liggur um Kambsnes milli Álftafjarðar
og Seyðisfjarðar en aðeins þarf hér að fara undir vesturhlíðum
Seyðisfjarðar, því að fyrir botni hans er lágt eiði og auðveld
vegarlagning inn til Hestfjarðar.
Fyrir bæði hann og Skötufjörð verður hins vegar að krækja
út á yztu nes. |