Sumarið 2003, 17. júlí, var afhjúpaður
minningarskjöldur um tvo brezka námsmenn, Ian Harrison og Tony Porser,
sem týndust á Öræfajökli 1953. Félagi þeirra í leiðangrinum, dr.
Jack D. Ives afhjúpaði skjöldinn. Þeir voru meðal brezkra
leiðangursmanna, sem stunduðu rannsóknir á Morsárjökli. Þeir lögðu
í göngu á Öræfajökul til að sigra hæsta tind landsins og safna sýnum í
leiðinni. Óveður skall á þá á leiðinni og þeir hafa ekki fundizt
fram á þennan dag.