|
Í
upphafi sjöunda áratugarins var mikill áhugi á því hjá
Iðnaðarmannasamtökunum á Akureyri undir forystu Sveinbjörns Jónssonar
sem síðar stofnaði hf Ofnasmiðjuna í Reykjavík, að flytja smíðahúsið á
lóð Norðlenzka byggðasafnsins á Akureyri þar sem það stæði sem
minnisvarði um “merkilegan eyfirzkan iðjuhöld og búnaðarfrömuð á fyrri
hluta 19. aldar, sem jafnframt var síhvetjandi sveitunga sína til dáða
og athafna, en sagði óþrifnaði og óreglu stríð á hendur.” (Íslendingur
26.10. 1962). Af þessum áformum varð þó ekki.
Smíðahúsið er tjargað timburhús með rennisúð á útveggjum og tvöfaldri
þakklæðningu, skarsúð að neðan en rennisúð ofan á. Geymsluloft er yfir
jarðhæð og í vesturenda hússins er tvöfalt eldstæði með gangi á milli,
hlaðið úr múrsteinum og sameinast reykpípurnar í skorsteini á efri hæð
hússins.
Þjóðminjasafnið tók Smíðahúsið í sína vörslu árið 1985. |