|
Skjaldbreiður (1060 m) er fagurt dæmi um
hraundyngju ásamt systur sinni Trölladyngju norðan Dyngjujökuls.
Skjaldbreiður er norðaustan Þingvallasveitar og er hluti svipmikils
fjallahrings sveitarinnar. Gígurinn á toppi fjallsins er u.þ.b. 300
m í þvermál og frá honum runnu mikil hraun, sem þekja m.a.
vestanvert Þingvallasvæðið.
Fjallið myndaðist líklega í löngu
gosi skömmu eftir eða í lok síðasta kuldaskeiðs ísaldarinnar.
Hraunin og allt landslag á þessu svæði hefur haggast, sigið og
risið eins og glöggt kemur fram í misgengjunum
Almannagjá,
Hrafnagjá
og óteljandi öðrum.
Í austanverðri Þingvallasveit eru
yngri hraun, sem runnu frá Tindaskagaheiði. Gjábakkavegur liggur á
suðurenda þeirra. Karl og Kerling eru tveir móbergshnjúkar sunnan
Skjaldbreiðar og skammt frá Kerlingu eru tveir leitarmannakofar og
hesthús. Jónas Hallgrímsson orti kvæðið „Fjallið
Skjaldbreiður", þegar hann villtist eitt sinn frá
ferðafélögum sínum nálægt
Brunnum
á
Kaldadalsleið:
Fanna skautar faldi háum
fjallið, allra hæða val;
hrauna veitir bárum bláum
breiðan fram um heiðardal.
Löngu hefur Logi reiður
lokið þessa steypu við.
Ógnarskjöldur
bungubreiður
ber með sóma réttnefnið. |