|
Skriðdalur
nær frá Völlum á Héraði að Breiðdalsheiði og Öxi í suðri.
Þar sem hann er breiðastur, klofnar hann um Þingmúlann í Norður-
og Suðurdal. Skriðuvatn
er í Suðurdal og afrennsli þess er
Múlaá,
en Geitdalsá fellur úr Norðurdal, sem hét Geitdalur áður.
Þegar árnar hafa sameinazt er Grímsá komin til skjalanna.
Grímsárvirkjun er í landi Stóra-Sandfells.
Þingmúli er kirkjustaður sveitarinnar, en þar var áður hinn
forni þingstaður, sem Múlaþing heitir eftir.
Núverandi þingstaður sveitarinnar er að Arnhólsstöðum,
gegnt Múlastað, en þar er samkomuhúsið.
Þjóðvegur #1 liggur um Suðurdal til Breiðdals.
Árið
1995 fannst fornmannsgröf rétt sunnan Þórisár í Skriðdal, spölkorn
ofna við þjóðveginn. Þetta
reyndist eitt merkasta kuml frá landnámsöld, sem fundizt hefur hér
á landi. Ríkur höfðingi
hefur veið heygður þar ásamt hesti sínum, vopnum og skartgripum.
Grautarskál, sem fannst meðal munanna, vakti mikla athygli.
Hún varð til þess, að sumir eigna kumblið
landnámsmanninum Graut-Atla.
Aðrir gizka á Ævar hinn forna.
Kumlinu var komið fyrir með upphaflegum ummerkjum í
Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum. |