|
Skrúður
er grasa- og trjágarður innan við Núp í Dýrafirði, sem séra
Sigtryggur Guðlaugsson, prófastur á heiðurinn af ásamt ræktun
matjurta í tengslum við kennslu við unglingaskólann á staðnum.
Garðurinn, sem var lagður grunnur að rétt eftir aldamótin
1900, átti að vera hluti námsefnis nemendanna.
Formlegur stofndagur hans var 7. ágúst 1909, en þá voru liðin
150 ár síðan séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal sá hugmynd sína
um kartöfluræktun á Vestfjörðum rætast.
Allt
fram til 1980 var annast vel um garðinn en síðan hallaði undan fæti
fram til 1992, þegar nefnd var falið að reisa hann við og gera áætlanir
um framtíðarviðhald hans, þar sem hann er í sjálfu sér
minnismerki um brautryðjendastarf í garðyrkju hérlendis.
Garðurinn var vígður á ný 1996 eftir mikið umbótastarf og
minnisvarði um prófastinn og Hjaltlínu Guðjónsdóttur, konu hans,
var afhjúpaður. |