|
Sóttarhellir
er efst í grasbrekku milli Þuríðarstaða og Húsadals.
Í honum eru þrjú berghöld og krossar í hvelfingunni.
Eftirfarandi
saga er sögð um Sóttarhelli:
„Einu sinni fóru 18 manns í göngur úr Fljótshlíð og komu
sér fyrir í helli einum til að hvíla sig.
Þá bar fyrir augu þeirra eldgamla skessu, sem þeir drógu dár
að utan einn, sem tók ekki þátt í stríðninni og reyndi að fá
hina til að hætta.
Skessan bað þeim bölbæna, svo að drepsótt tók þá alla
strax nema þann, sem hafði ekki móðgað kerlingu.
Þeir dóu allir í hellinum og hann fékk nafn sitt af því. (Íslenzkar
þjóðsögur og ævintýri).
Sagan
segir, að mönnum hafi staðið ógn af hellinum eftir þennan atburð
og þangað hafi verið fluttar klukkur, sem voru hengdar í berghöldin,
þegar hann var vígður, og sumir halda því jafnvel fram, að hann
hafi verið notaður sem bænhús um tíma. |