|
Speni
er hóll milli Skreflna og Kolbeinsvíkur. Hann líkist konubrjósti, því
að upp úr honum stendur þúfa sem álengdar minnir á geirvörtu. Við
Spenann eru hreppamörk Kaldrananess- og Árneshrepps.
Gvendur
góði og skessan
Sagan
segir, að tröllskessa ein, sem bjó í Skreflufjalli
(776m), sem er girt hrikalegum hömrum, hafi haft ímugust
á bóndanum í Kolbeinsvík vegna þess, hve bær hans stóð nærri híbýlum
hennar. Hún reyndi margt til að hrekja hann brott og vildi helzt drepa
hann og allt hans hyski.
Nótt eina settist hún á fjallseggjarnar fyrir ofan bæinn og
spyrnti fram vænni sneið af fjallinu. Hugmyndin var sú að enginn sem
fyrir skriðunni yrði þyrfti framar um sár að binda.
Kerla varaði sig hins vegar ekki á því að þessa sömu nótt gisti
Guðmundur biskup hinn góði í Kolbeinsvík. Hann vaknaði skjótt við
skruðningana í grjóthruninu, vatt sér í snatri framúr og sá hvar
fjallshlíðin skreið fram. Biskupinn hljóp út úr bænum og áttaði sig
strax á hvers kyns var og myndi óvætturin valda. Hann breiddi út faðminn móti hrapandi
fjallinu og hrópaði: „Hjálpa þú nú Drottinn, eigi má veslingur minn.“
Á sömu stundu og biskup mælti þessi orð stöðvaðist grjóthrunið þar sem
það nú er og hefur ekki hreyfzt síðan. |