|
Steinsholt
er 5 km langur afréttur innan Langaness í Eyjafjöllum norðanverðum. Það
afmarkast einnig af tveimur skriðjöklum, Falljökli eða Gígjökli og
Steinsholtsjökli. Við jaðar þeirra eru djúp lón. Neðan Gígjökuls
liggur leiðin inn í Þórsmörk. Afrétturinn er hlíðabrattur og skorinn
djúpum giljum með hamraborgum á milli. Hann var mjög erfiður smölunar
og stundum þurfti að láta fé síga í böndum niður á jafnsléttu.
Árið 1967
(15. jan.) brotnaði stór fylla úr Innstahaus (15 miljónir m3)
við jökulinn vestanverðan, þar sem þverhnípið er u.þ.b. 400 m hátt.
Þessar náttúruhamfarir komu fram á jarðskjálftamælum á
Kirkjubæjarklaustri. Fyllan varð að stórri hrúgu á jöklinum, braut hann
og bramlaði og jós stórri flóðbylgju upp úr lóninu. Hún bar með sér
mikinn ís og stórgrýti. Vatnið hljóp fram í Markarfljót og rennslið við
brúna, 25 km neðar, mældist mest 2100 m3/sek. Áætlað
vatnsmagn var 1½-2½ miljónir rúmmetra. |