|
Náttúrufegurð er mikil á Stokkalæk. Lækurinn, sem bærinn dregur
nafn sitt af, rennur í afar fögru gili, þar sem náttúrulegir
hraunfossar gleðja augað
á öðrum bakkanum en melar og klettar prýða hinn bakkann.
Vatnsdalsfjall, Þríhyrningur og Tindfjöll mynda umgjörð um
þessa vin
við hálendisjaðarinn. Skyggnir er útsýnisstaður við túnjaðarinn
á bænum
og þaðan má líta jafnt fagra fjallasali sem sælan
sveitablóma. |