|
Stöng í Þjórsárdal mun hafa eyðzt í
Heklugosi árið 1104 ásamt fjölda annarra bæja í dalnum. Þetta
er fyrsta gosið í Heklu, sem getið er um eftir landnám. Árið
1939 fór hópur norrænna fornleifafræðinga á stúfana í
Þjórsárdal og uppgötvuðu margt merkilegt, s.s. húsaskipan.
Þótt grafið væri víða, var ákveðið að reyna að varðveita
uppgröftinn á Stöng og byggt yfir hann, þannig að gestir og
gangandi gætu gert sér grein fyrir híbýlum manna á söguöld.
Þjóðveldisbærinn, sem var byggður í dalnum 1974-77, var gerður
með Stöng sem fyrirmynd. Talið er að Gaukur trandill hafi búið
á Stöng á 10. öld og að húsfreyjan á Steinastöðum, sem
stóðu nokkuð ofar, hafi verið ástkona hans, enda segir í
vísunni:
Þá var öldin önnur,
er Gaukur bjó í Stöng,
Þá var ei til Steinastaða
leiðin löng. |