|
Stórurð (Hrafnabjargaurð) er í Urðardal í
Hjaltastaðaþinghá. Hún er hluti jarðarinnar
Hrafnabjarga. Hún er meðal stórfenglegustu náttúrufyrirbæra
Austurlands. Talið er, að stóru björgin séu bergfyllur, sem
féllu á skriðjökul, sem flutti þær fram dalinn og síðan bráðnað undan
þeim. Þarna eru sléttir grasbalar og djúpar tjarnir milli
bjarganna, sem eru á hæð við fjölbýlishús. Dyrfjöllin gnæfa
yfir, tignarleg eins og frá öðrum sjónarhornum. Þarna er
snjóþungt, þannig að snemmsumars má búast við talsverðum snjó.
Bezt er að halda sig við merktar leiðir í Stórurð í þoku, því þar er
villugjarnt við slík skilyrði. Merkt leið liggur frá Stórurð til
þjóðvegarins í Ósfjalli, önnur upp á Vatnsskarð og tvær til
Borgarfjarðar eystri. Önnur liggur upp urðina og um
Eiríksdalsvarp og niður að Hólalandi innst í Borgarfirði eystri, en
hin yfir Mjóadalsvarp og um Grjótdalsvarp niður í Bakkagerði.
Ganga um þessar slóðir er einn hápunktanna í gönguferðum um
Víknaslóðir. |