|
Gunnlaugur (Guðlaugur) Þorfinnson, langafi Hvamms-Sturlu bjó að Straumfirði. Straumfjarðar-Höllu er minnst
með mörgum örnefnum, s.s. Höllubrunnur, Höllugróf, Höllunaust og Hölluvör. Halla var mikill kvenskörungur
og vel að sér. Almannarómur gerði hana fjölkunnuga.
Þarna var löggilt verzlunarhöfn 1863 og verzlað til
aldamótanna 1900. Halla mælti svo um, að þar yrði aldrei kaupstaður og
það hefur rætzt. Við samnemdan fjörð er
Straumfjarðará, sem er ágætis
laxveiðiá úr Hraunsfjarðar- og
Baulárvallavatni og fellur til sjávar í Straumfirði.
Virkjun var byggð við svokallaða Vatnaleið við
Straumfjarðará árið 2005. |