|
Straumnes
er á milli Aðalvíkur og Rekavíkur.
Fjallið á nesinu heitir ýmsum nöfnum líkt og Esjan.
Upp af Aðalvík heitir það Látrafjall og frá Kví gengur
Straumneshlíð brött í sjó fram.
Straumnesfjall er inn af henni, en venjulega er það nafn látið
duga fyrir allt fjallið.
Nesoddinn er strógrýtisurð, þar sem elzti Goðafossinn
strandaði 1916.
Viti var byggður þar árið 1921.
Fjallið
Skorar er austan Straumnesdal Rekavíkurmegin, þar sem Bandaríkjamenn
byggðu stóra radarstöð 1954-56.
Þá var gerður flugvöllur á söndunum innan við Látra í Aðalvík
og vegur upp fjallið.
Stöðin starfaði einugis í 10 ár. |