|
Surtshellir er lengstur og nafntogaðastur þekktra íslenzkra hella.
Hann er skammt norðan Strúts í Hallmundarhrauni, u.þ.b. 7 km frá
Kalmanstungu. Heildarlengd hellisins er 1970 m. Stefánshellir
er í beinu framhaldi af Surtshelli til norðausturs. Heildarlengd
beggja er 3500 m.
Þak Surtshellis hefur hrunið á fimm stöðum, þar
sem eru jafnmörg op. Venjulega er nyrzta opið notað sem
inngangur. Aðeins sunnar eru tvö stór op og hið syðsta er aðeins
400 m frá hellisendanum. Meðallofthæð í hellinum er 9 m en
innst lækkar hún niður í 2-4 m.
Þar er hinn svonefndi íshellir,
sem er prýddur ísdrjólum og íssúlum, sem ná stundum upp í þak.
Það er auðveldast að komast um þennan hluta hellisins, sem mörgum
finnst fegurstur, en þar er mjög hált undir fæti.
Hellaskoðun krefst alltaf varúðar og góðs
útbúnaðar. Það er ekki lengur í tízku að ganga um
hella með logandi kyndla. Nú á dögum eru notuð góð
handrafljós og langbezt er að vera með hjálma búnum rafljósi
að auki. |