Sveiflu-
eða Austurháls. Móbergshryggur (hæstur 395 m.y.s.) í
Reykjanesfjallgarðinum, vestan við Kleifarvatn. Sveifluháls fellur með
bröttum hömrum niður að Kleifarvatni. Sunnan til í hálsinum að
austanverðu er mikill jarðhiti. Er þar hverasvæði það sem kennt er við
Krýsuvík. Hæstu tindar á hálsinum eru Hellutindar, Stapatindar og
Miðdegishnúkar.