|
Teigarhorn er bær í Búlandshreppi skammt,
u.þ.b. 4 km inn af Djúpavogi. Þar er líklega merkasti
fundarstaður geislasteina (zeolíta, aðallega skolesít) í heiminum.
Þessir kristallar eru holufyllingar í gosbergi, s.s. blágrýti.
Þeir veðrast úr berginu við bæinn, einkum er brimið
afkastamikið við þá iðju. Þarna finnast stærstu og fallegustu
zeolítar á landinu. Þeir voru aðgengilegir öllum þar til náman
var friðlýst. Nú verður að fá leyfi bóndans og fylgd hans til
að skoða hana í sjávarhömrunum neðan bæjar.
Fyrstu veðurathuganir á Austurlandi hófust þar 1874.
Mesti hiti, sem mælzt hefur þar var 30,5°C í júní 1939.
Nikólína Weywadt (1848-1921), einn fyrsti ljósmyndari á
Austurlandi, sem erfði jörðina eftir föður sinn, Niels Peter
Emil Weywadt (1814-83), verzlunarstjóra á Djúpavogi, bjó þar
og jörðin er enn þá í eigu og ábúð niðja hans.
Íbúðarhúsið, sem hefur verið í umsjá Þjóðminjasafnsins síðan 1992 (búið í því til 1988), var
byggt á árunum 1890-82 og var upphaflega pappaklætt, sem var
óvenjulegt hérlendis. Undir húsinu er steinhlaðinn kjallari og
hæðin ofan á jarðhæðinni er portbyggð og geymsluloft er í risi.
Húsið er 65 fermetrar.
Nikólína sá um búið að föður sínum látnum og lét byggja ljósmyndaskúr.
Plötusafn hennar og ýmis áhöld eru í vörzlu Þjóðminjasafnsins, sem lét gera við íbúðarhúsið fyrir
aldamótin og til stendur að endurbyggja ljósmyndaskúrinn. Frænka
Nikólínu, Regína Björnsdóttir (1884-1973), lærði ljósmyndun hjá henni.
Hinn 22. september 1872 fórst bátur á leið frá Teigarhorni til
Djúpavogs í blíðviðri að kvöldlagi. Með honum fórust Niels Emil
Weywadt, lögfræðingur, 29 ára sonur Nielsar verzlunarstjóra, fjögur
systkini hans og fimm menn aðrir. Alls átti Weywadt verzlunarstjóri
14 börn. Í landslaginu umhverfis Búlandshöfða eru berggangar mjög
áberandi. |