|
Þelamörk
er í austanverðurm Hörgárdal, niður frá Bægisá. Þjóðvegurinn liggur um
Moldhaugnaháls, sem er austan hennar, og þaðan hækkar landslægið upp í
Vindheimajökul (1454m). Stallarnir í hlíðinni eru allt að 100 m ofan
dalbotnsins og nyrzti hluti þeirra heitir Laugalandsheiði. Laugaland er
forn kirkjustaður og þar er jarðhiti eins og nafnið bendir til. Á
árunum 1943-45 var byggð sundlaug við túnfótinn og heimavistarskólinn
(Þelamerkurskóli) þar var opnaður 1965. Hann hefur verið notaður sem
sumarhótel í áratugi. Stór skógræktargirðing var sett upp í landi Vagla
á Þelamörk. Þaðan fá Akureyringar neyzluvatn sitt. |