|
Þjóðveldisbærinn (1974-1977) undir
Sámsstaðamúla er tilraun til þess að endurreisa á sem
trúverðugastan hátt stórbýli frá því um 1100. Grunnmyndin af
Stöng
er lögð til grundvallar, en veggir, þak og allir innviðir eru
gerð eftir fyrirmyndum, sem þekktar eru frá fornleifarannsóknum
eða öðrum heimildum. Hörður Ágústsson, arkitekt, sagði til um
gerð bæjarins. Fyrsta sögulega
Heklugosið
varð árið 1104. Það færði byggðina í
Þjórsárdal
eyði, en þar voru þá u.þ.b. 20 bæir. Árið 1939 fóru nokkrir
norrænir fornleifafræðingar á stúfana og grófu nokkra þeirra
upp, m.a. bæinn að Stöng, sem var mjög vel varðveittur undir
þykku lagi af vikri. Árið 1974 var ákveðið að reisa
eftirlíkingu að miðaldabæ til að minnast 1100 ára búsetu í
landinu.
Byggingu bæjarins lauk árið 1977. Reynt var af fremsta
megni að fylgja öllum hlutföllum, sem fengust frá Stöng, s.s.
stærð og staðsetningu svefnbekkja, búrs, dyra, klósetts o.fl.
Torfveggir eru eins og á Stöng að öðru leyti en því, að
Hörður tók sér það bessaleyfi að nota klömbrur í stað
strengs. Innréttingarnar eru byggðar á gömlu tréverki, sem hefur
fundizt víðs vegar um landið og á Grænlandi, lýsingum, sem koma
fram í Íslendingasögunum og gömlum húsum, sem eru enn þá
varðveitt á öðrum Norðurlöndum og fornleifarannsóknum þar.
Fyrirmynd útihurðarinnar er hin kunna Valþjófsstaðahurð, sem er
varðveitt í Þjóðminjasafninu. Margt, sem til var í bæjum á
miðöldum vantar enn þá, s.s. veggtjöld, kistur, lampar, verkfæri
og tól og eldhúsáhöld, svo eitthvað sé nefnt. Vitneskju um marga
hluti, sem um er að ræða, er ekki enn þá fullkomin og aðra
skortir vegna bágs fjárhags.
Nýjasta viðbótin við byggingar undir
Sámstaðamúlanum er stafkirkjan, sem var byggð 1999-2000 og komið
fyrir sumarið 2000. Hún er byggð úr norskum kjörviði og er gjöf
frá Norðmönnum í tilefni 1000 ára kristni í landinu og fundar
Norður-Ameríku.
Opið er alla
daga frá 1. júní til 31. ágúst milli klukkan 10-12 og 13–18
(lokað í hádegi).
Sími: 488-7713 |