|
Þessir fossar eru líkari flúðum, þegar mikið
er í
Þjórsá
austan Búrfells, en eftir að Búrfellsvirkjun
tók til starfa, hefur tíðast runnið lítið vatn um gamla
farveginn.
Milli Tröllkonuhlaups og Þjófafoss er nafnlaus foss.
Þjófafoss er talinn hafa fengið nafn af því, að þar hafi
þjófum verið drekkt. Tröllkonuhlaup fell milli nokkurra kletta,
sem stóðu upp úr ánni eins og stiklur. Nafn þessa foss er skýrt
í þjóðsögunni um Gissur í Botnum, en þar segir að
tröllkerlingin í Búrfelli hafi fleygt þessum klettum út í
Þjórsá til að geta stiklað yfir ána þurrum fótum, þegar hún
fór að heimsækja systur sína í Bjólfelli.
Það er örskammt
milli Þjórsár og
Ytri-Rangár
á þessum slóðum, en austan hennar er
hnjúkur, sem heitir Tröllkona. Það er lítill krókur að aka frá
veginum yfir vikursandana milli Búrfells og
Heklu
niður að þessum fossum. |