|
Sagt er að Þjórsárdalur hafi verið í byggð frá landnámi til stórgoss Heklu
árið 1104, þegar byggðin eyddist næstum alveg í dalnum. Þjóðveldisbærinn var
reistur þar og vígður árið 1974 á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar og er opinn
almenningi á sumrin. Hann var byggður með rústirnar að Stöng, ofar í dalnum, sem
fyrirmynd (uppgröftur 1939). Stöng er tengd örstuttri sögu um Gauk trandil, sem er
sagður hafa búið þar og fíflað bóndakonuna á Steinastöðum, systur fóstbróður
hans, Ásgríms Elliðagrímssonar. Þrátt fyrir blóðböndin vó Ásgrímur Gauk á
Gaukshöfða við Þjórsá fyrir þessar ávirðingar. Þar fannst kuml með vopnum og
öðrum minjum, sem eru varðveittar á Þjóðminjasafni.
Í þjórsárdal er útisundlaug, sem starfsmenn Landsvirkjunar
byggðu á meðan Búrfellsvirkjun var í byggingu. Hún er opin
almenningi á sumrin. Næsthæsti foss landsins, Háifoss, er innst í dalnum í
Fossá. Annar foss, Granni, fellur fram af sömu bjargbrún við hliðina á
honum. Það er auðveldara að komast að fossunum frá línuveginum ofan
við þá en að aka upp allan dalinn (aðeins fjórhjóladrifsbílar). Rétt
hjá fornleifauppgreftrinum að Stöng er önnur náttúruperla, Gjáin, sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Þar sést fagurt samspil landslags, gróðurs, fossa og
lækja. Hægt er að aka frá Stöng upp að góðum útsýnisstað við Gjána og áfram
upp á Haf að Hólaskógi og Sandafelli við Þjórsá og inn á leiðina að Hrauneyjum, Sigöldu,
Sprengisandi og Landmannalaugum.
Enn þá eru tveir bæir í byggð í Þjórsárdal,
Ásólfsstaðir (gistihús 1928-52) og Skriðufell, sem er í eigu
Skógræktar ríkisins (tjaldstæði; mannamót).
Rauðukambar eru skrautlegir og litríkir
ríólíthryggir, sem skipta Þjórsárdal í tvo botna.
Fossá steypist niður í eystri botninn, Fossárdal, en
Bergálfsstaðaá rennur eftir vestari botninum. Milli
Reykholts og Rauðukamba er sundlaugin, sem er getið hér að
ofan.
Skriðufell er bær í Þjórsárdal í eigu Skógræktar
ríkisins. Þarna er birkiskógur, sem hefur verið girtur
og friðaður og mikið hefur verið gróðursett af öðrum
tegundum, aðallega greni. Tjaldstæði er að
Skriðufelli. |