Á 19. öld
fóru skip að koma til Þórshafnar á ný. Kaupmenn í Keflavík sendu oft
skip sín þangað með salt, timbur og aðra þungavöru en tóku í staðinn
fisk af bændum á Miðnsesi og í Höfnum. Í byrjun 20. aldar fór
skipakomum að fækka til Þórshafnar, enda tók Sandgerði þá við hlutverki
verzlunarstaðar á Miðnesi.