|
Þykkvabæjarklaustur er kirkjustaður í Álftaveri.
Þar var munkaklaustur í katólskum sið, stofnað 1168, og hélzt til
siðaskipta. Nafntogaðasti munkurinn þar var Eysteinn Ásgrímsson.
Hann var uppi á 14. öld og kom nafni sínu á spjöld sögunnar með
hinu ódauðlega helgikvæði „Lilju", sem allir vildu ort hafa.
Stuðlabergssúla stendur þar, sem talið er að klaustrið hafi
staðið. Margar sögur fara af samskiptum munkanna í
Þykkvabæjarklaustri og nunnanna í Kirkjubæjarklaustri. |